

Þrír leikir áttu sér stað í dag er 31.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar var á fullri ferð. Fyrsti leikur dagsins fór fram í Wunderino Arena er Kiel tók á móti Füchse Berlin. Leikurinn var mjög jafn og spennandi framan af, en undir lokin sýndi Füchse Berlin meiri gæði og vann að lokum öruggan 35–28 sigur á Kiel. Fyrri hálfleikur var hraður og skiptust liðin á að hafa frumkvæðið, en Berlinarmenn fóru með tveggja marka forystu inn í hálfleikinn, 18–16. Í seinni hálfleik hélt Kiel sér inni í leiknum og jafnaði meðal annars í 25–25 þegar um tólf mínútur voru eftir. Þá tók Berlin hins vegar algjörlega yfir leikinn, þar sem Mathias Gidsel var stórkostlegur á lokakaflanum. Seinni leikur dagsins fór fram þegar Erlangan tók á móti Gummersbach. Gummersbach byrjaði leikinn af miklum krafti og náðu fljótt góðri forystu og voru mun ákveðnari í sóknarleiknum. Sérstaklega voru Miro Schluroff og Kentin Mahé öflugir og leiddu þeir Gummersbach áfram í fyrri hálfleik, Hálfleikstölur voru 11-17. Í seinni hálfleik reyndi Erlangen að minnka muninn og náði stundum ágætum köflum, en Gummersbach hélt alltaf stjórn á leiknum. Þegar leið á leikinn varð ljóst að heimamenn áttu erfitt með að stöðva hraðan og agaðan sóknarleik gestanna. Gummersbach hélt forskotinu öruggu allt til loka og vann að lokum sanngjarnan 26–22 sigur. Þriðji og seinasti leikur dagsins fór fram í GETEC Arena er íslendingalið Magdeburg tók á móti Hamburg. Magdeburg var mun sterkara liðið og tóku snemma völdin í leiknum. Heimamenn spiluðu hraðan og agaðan sóknarleik þar sem Ómar Ingi Magnússon fór á kostum með 11 mörk og 3 stoðsendingar. Staðan var 21-12 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Í seinni hálfleik hélt Magdeburg áfram að keyra yfir gestina og munurinn jókst jafnt og þétt. Tim Hornke, Felix Claar og Gisli Thorgeir Kristjansson áttu einnig mjög góðan leik og sóknarleikurinn small nánast í hverri sókn. Hamburg átti erfitt með að stöðva hraðann og tapaði boltanum oft, sem heimamenn refsuðu fyrir með hraðaupphlaupum. Undir lokin var sigurinn löngu kominn í höfn og urðu lokatölur 41–28. Úrslit dagsins: Kiel-Füchse Berlin 35-28 Erlangan-Gummersbach 26-22 Magdeburg-Hamburg 41-28

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.