Lokaumferðin í úrslitakeppnisriðlunum í dönsku úrvalsdeildinni fór fram í dag en TTH Holstebro þurfti að vinna útisigur á Skanderborg og treysta á það að Mors-Thy myndi tapa á heimavelli gegn Bjerringbro-Silkeborg. Lærisveinar Arnórs Atlasonar í Holstebro skiluðu sínu og unnu góðan þriggja marka sigur, 28-31. Kristján Örn Kristjánsson, Donni átti erfitt uppdráttar í liði Skanderborg en hann klikkaði á öllum þremur skotum sínum en gaf þó eina stoðsendingu. Í liði gestanna skoraði Jóhannes Berg Andrason eitt mark úr tveimur skotum. Það dugði þó skammt því Mors-Thy vann nauman sigur á Bjerringbro-Silkeborg, 32-31 og eru því komnir í undanúrslitin ásamt Skanderborg. Það er því ljóst að Mors-Thy mætir Álaborg og Skanderborg mætir GOG. Úrslit dagsins: Skanderborg 28-31 TTH Holstebro Mors-Thy 32-31 Bjerringbro-Silkeborg Skjern 37-31 Fredericia Aalborg 35-32 GOG

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.