
Rúmenska stórliðið Dinamo Bucuresti hefur gengið frá samningi við portúgalska landsliðslínumanninn, Victor Iturriza til næstu tveggja ára. Félagið greindi frá félagaskiptunum á samfélagsmiðlum sínum á dögunum. Iturriza kemur til félagsins eftir eins árs dvöl hjá Kuwait Sporting Club í Kuwait. Þar áður lék hann hjá FC Porto á árunum 2016 til 2025. Þessi 30 ára línumaður er 194 sentímetrar á hæð og vegur 117 kíló. Iturriza hefur einnig verið fastamaður í portúgalska landsliðinu sem hefur náð góðum árangri á stórmótum undanfarin ár. Hann var meðal annars í liðinu sem hafnaði í fjórða sæti á heimsmeistaramótinu 2025 og í fimmta sæti á Evrópumótinu 2026. Hjá Dinamo București hittir Iturriza landsliðsþjálfarann sinn, Paulo Pereira sem er á sínu fyrsta ári hjá Bucuresti samhliða því að þjálfa portúgalska landsliðið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.