Skoruðu 42% marka liðsins í Meistaradeildinni
BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP

Það er orðið ansi erfitt að tala um Sporting CP án þess að byrja og enda umræðuna á Costa-bræðrunum.

Francisco Costa og Martim Costa áttu enn eitt frábæra tímabilið í Meistaradeild Evrópu og tölurnar segja eiginlega allt sem segja þarf.

Bræðurnir skoruðu samtals 248 mörk fyrir Sporting í Meistaradeildinni á tímabilinu — sem jafngildir tæplega 42% af öllum mörkum liðsins í keppninni.

Á meðan mörg topplið í Evrópu dreifa ábyrgðinni á sex til átta lykilmenn er Sporting að miklu leyti byggt í kringum tvo unga bræður sem virðast bara verða betri með hverjum stórleiknum.

Francisco hefur verið einn allra mest spennandi leikmaður Evrópu síðustu tvö ár og er þrátt fyrir ungan aldur orðinn burðarás í félagsliði sínu og landsliði. Martim fær oft aðeins minni fyrirsagnir en áhrifin hans á leik Sporting eru gríðarleg. Tempóið, áræðnin og handboltavitundin hjá honum gerir þetta Sporting-lið hættulegt gegn hverjum sem er.

Það sem mest áhugavert við þetta allt saman er að þeir eru ekki bara að safna tölfræði í einhverjum auðveldum leikjum. Þeir eru að gera þetta gegn bestu liðum Evrópu. Í stærstu leikjunum, undir mestu pressunni.

Sporting hefur verið eitt skemmtilegasta lið Evrópu í vetur — og Costa-bræðurnir eru ein aðal ástæðan fyrir því.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top