Í fyrsta skipti í undanúrslit í 13 ár
Bertel Bolt / Mors-Thy

Það varð ljóst um helgina hvaða lið leika í undanúrslitum um danska meistaratitilinn þegar átta liða riðlakeppnin lauk í Danmörku en á föstudaginn var samþykkt á ársþingi HSÍ að leikið yrði sama fyrirkomulag í úrslitakeppninni hér á landi á næstu leiktíð.

Mors-Thy vann sér sæti í undanúrslitum í fyrsta skipti síðan árið 2013 en liðið vann dramatískan sigur á Bjerringbro-Silkeborg í lokaumferðinni. Mors-Thy tryggði sér í undanúrslitin með með eins marks sigri 32-31.

Nú bíður þeirra Álaborg í undanúrslitum en í hinu undanúrslitaeinvíginu mætast Skanderborg og GOG. Arnór Atlason og lærisveinar hans í TTH Holstebro eru hinsvegar komnir í sumarfrí þrátt fyrir sigur gegn Skanderborg í lokaumferðinni en Skanderborg hafði unnið sér sæti í undanúrslitum fyrir lokaumferðina.

Nú tekur við landsleikjapása en undanúrslitaeinvígin hefjast 20. maí.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top