
Við heyrðum aðeins í Birgi Stein Jónssyni leikmanni Såvehof en hann var nýlega að klára sitt fyrsta tímabil með sænska liðinu eftir að hafa gengið í raðir liðsins frá Aftureldingu fyrir rúmu ári síðan. Såvehof datt út í undanúrslitum um sænska meistaratitilinn en liðið tapaði 3-0 á móti Malmö. Birgir Steinn spilaði alls 31 leik í deild og úrslitakeppni og skoraði hann 96 mörk ásamt því að gefa 64 stoðsendingar. Birgir Steinn sagði okkur aðeins m.a frá keppnistímabilinu, deildinni og styrkleika hennar. Keppnistímabilið Tímabilið hjá okkur var mjög sveiflukennt. Fyrir tímabilið fóru 7 leikmenn og við vorum 6 nýir sem komum inn, þannig við vorum nánast með glænýtt lið. Við duttum út í undanúrslitum Playoffs, 8-liða úrslitum í bikarnum og svo munaði 1 stigi að við færum áfram úr riðlinum í Evrópudeildinni. Þannig að þetta var heilt yfir vonbrigðatímabil og mjög mikið "næstum því" í öllum keppnum. Mitt persónulega gengi hefur verið svolítið í takt við gengi liðsins, upp og niður, en hef verið í stóru hlutverki bæði vörn og sókn nánast allt tímabilið. Heilt yfir er ég bara nokkuð sáttur persónulega við tímabilið því það tekur alltaf smá tíma að aðlaðgast nýju liði og breyttum áherslum en finnst það hafa gengið vel og sérstaklega eftir áramót. Partille og námið Ég bý í Partille þar sem við æfum og spilum. Það eru rúmar 15 mínútur frá miðbæ Gautaborgar. Við æfum við toppaðstæður og mjög gott að búa hérna. Í frítímanum er líka mjög fínt að búa rétt hjá stórborg og erum við strákarnir í liðinu duglegir að kíkja þangað þegar við höfum tíma. Ég er einnig að klára mastersnám sem ég vr búinn með 1 ár af áður en ég kom út og reikna með að klára það næsta sumar. Það er fínt að hafa eitthvað annað en bara handboltann til að dreifa huganum milli æfinga og leikja. Styrkleiki sænsku deildarinnar Sænska deildin er töluvert sterkari en íslenska deildin og auðvitað eru bestu liðin hér betri og með fleiri góða leikmenn í sínu liði. Það er kannski helsti munurinn hversu margir góðir leikmenn eru í bestu liðunum, ekki bara fyrstu 7-9 heldur geta liðin róterað mikið á góðum leikmönnum í flest öllum stöðum. Einnig kom mér á óvart hversu sterk liðin eru sem eru í neðri hluta deildarinnar en ég held að öll liðin þar (fyrir utan neðstu 2) hafi tekið stig af liðunum í toppbaráttunni sem segir til hversu jöfn deildin er. Taktíkin hér úti er líka miklu meiri en ég hef kynnst heima. Svíarnir leggja mjög mikið upp úr plönuðum sóknarleik en ég er mjög hrifinn af því líka hvað þeir leggja mikla áherslu á taktík í varnarleik.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.