Siewert orðaður við Melsungen
MARIUS BECKER / AFP

Þjóðverjinn, Jaron Siewert sem gerði Fuchse Berlín að Þýskalandsmeisturum í fyrsta skipti í sögu félagsins á síðustu leiktíð er orðaður við þjálfarastarfið hjá MT Melsungen.

Það er SportBild sem greinir frá.

Jaron Siewert var óvænt sagt upp störfum í upphafi tímabils þrátt fyrir að hafa gert Fuchse Berlin að Þýskalandsmeisturum á síðustu leiktíð. Siewert hefur verið án starfs síðan þá en nú er hann orðaður við MT Melsungen.

Roberto Parrondo hefur stýrt Melsungen frá árinu 2021 en hann hefur verið sterklega orðaður við þjálfarastarfið hjá Paris Saint Germain en Stefan Madsen tók við liðinu síðasta sumar en árangur liðsins hefur ekki verið í takt við væntingar félagsins.

Þýski miðillinn SportBild greinir frá því að Jaron Siewert sé líklegastur til að taka við liði Melsungen fari svo að Parrondo yfirgefi liðið fyrir franska stórliðið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top