
Eftir átta tímabil í Þýskalandi og í Frakklandi ákvað danski landsliðsmaðurinn Jacob Holm að snúa heim til Danmerkur í sumar en hann hefur samið við danska úrvalsdeildarfélagið Skjern. Hann gerði fjögurra ára samning við Skjern. Jacob Holm lék áður með Ribe-Esbjerg áður en hann gekk í raðir Füchse Berlín og síðan Paris Saint Germain. Jacob Holm er uppalinn hjá Skjern en fór ungur að árum til Ribe-Esbjerg. Jacob Holm sleit hásin fyrir einu ári síðan en sneri til baka, 364 dögum síðar þegar hann lék sinn fyrsta leik á tímabilinu með PSG í gær. ,,364 dagar síðan ég sleit á hásininni. Í dag var ég aftur á vellinum í fyrsta skipti. Ég er mjög ánægður og þakklátur fyrir það," skrifaði Jacob Holm við færslu sem hann birti á Instagram síðu sinni. Jacob Holm skoraði eitt mark í endurkomu leiknum er PSG vann ellefu marka útisigur gegn Sélestat í frönsku úrvalsdeildinni. Einungis þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni en PSG hefur tveggja stiga forystu á Nantes en liðin mætast í næst síðustu umferðinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.