Þjálfaramál karlaliðs Aftureldingar voru til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins en Afturelding er þjálfaralaust eftir að Stefáni Árnasyni var sagt upp störfum eftir tímabilið. Fjölmargir hafa verið nefndir til sögunnar sem arftakar Stefáns en samkvæmt heimildum Handkastsins hafa Ásbjörn Friðriksson og Patrekur Jóhannesson afþakkað starfið. Patrekur Jóhannesson sem var rekinn sem þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar á síðasta tímabili var samkvæmt heimildum Handkastsins kominn í viðræður við Aftureldingu sem sigldu í strand. Í nýjasta þætti Handkastsins var rætt um nýjustu leigubílasöguna um þjálfaramál Aftureldingar en sagan segir að Afturelding hafi hlerað Aron Pálmarsson aðstoðarþjálfara FH. Aron afþakkaði hinsvegar boðið áður en lengra var haldið. Aron kom inn í þjálfarateymi FH á miðju tímabili en FH hafnaði í 2.sæti bæði í Olís-deildinni og í úrslitakeppninni eftir tap gegn Val í oddaleik. Ekki er vitað hvort Aron verði áfram í þjálfarateymi FH á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.