
Í nýjasta þætti Handkastsins var rætt um styrkingar Þórs fyrir komandi tímabil í Olís-deild karla en á dögunum var greint frá því að Daninn, William Skovsager hafi gengið í raðir félagsins frá Kyndil í Færeyjum. Skovsager er þar með fjórði danski leikmaðurinn sem gengur í raðir Þórs fyrir næstu leiktíð. WILLIAM SKOVSAGER SEMUR VIÐ ÞÓR ,,Mér finnst þetta vera frábært á Þórsurum, það hefur mikið verið rætt um að það vantar fleiri skrokka á æfingar hjá liðinu. Yngri flokka starfið hefur kannski ekki verið að skila nægilega mörgum leikmönnum og þá verða þeir að fara þessa leið. Mér finnst þetta flott, ég held að kostnaðurinn sé ekkert brjálæðislega mikill," sagði Davíð Már Kristinsson í nýjasta þætti Handkastsins. ,,Ég hugsa að þetta sé ódýrara en að fá Íslending norður," bætti Stymmi klippari við. ,,Bara það að fá fjóra nýja leikmenn í hópinn, ég myndi halda að Þórsarar væru líklegir til þess að fara í úrslitakeppnina. Ég veit ekkert hvað þessir leikmenn geta en þetta er frábært fyrir Þór og svo sannarlega gaman að hafa tvö frambærileg lið á Akureyri og vatn á myllu þeirra sem vildu slíta samstarfinu á sínum tíma. Það heyrist ekki mikið í þeim sem vildu halda samstarfi Akureyrar Handboltafélags."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.