
Fjárhagsstaða Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) er afar slæm um þessar mundir og ljóst að sambandið stendur frammi fyrir verulegum áskorunum. Skuldir sambandsins nema nú tæplega 150 milljónum króna en á síðasta ári var rekstrartap HSÍ 22 milljónir en rátt fyrir það er staðan enn mjög erfið og ljóst að grípa þarf til aðgerða á næstunni. Ljóst er að ekki verður hægt að halda úti óbreyttu afreksstarfi án utanaðkomandi aðstoðar að sögn Jóns Halldórssonar formanns HSÍ. Formaður HSÍ, Jón Halldórsson var í viðtali við Vísi um málið en ársreikningur HSÍ var til umræðu á 69. ársþingi HSÍ í síðustu viku. ,,Það liggur ljóst fyrir og ég hef verið skýr með að það vantar peninga inn frá ríkinu. Skuldastaðan er orðin gríðarleg og við skuldum um 150 milljónir sem þurfa að greiðast á næstu tólf mánuðum. Þetta er ekki út af einhverri óráðsíu. Þetta er það sem kostar að reka samband sem nær árangri," sagði Jón í viðtali við Vísi. Kostnaður við rekstur landsliða hefur aukist mikið á síðustu árum. Þátttaka á stórmótum getur numið tugum milljóna króna og árangur á þeim vettvangi hefur bein áhrif á útgjöld. Þá bendir Jón á að til að mynda á síðasta Evrópumóti þar sem Ísland fór alla leið í úrslitahelgina og endaði í 4.sæti á mótinu hafi það aukið útgjöld HSÍ um nokkrar milljónir. ,,Að fara á stórmót er farið að kosta um 40 milljónir króna. Karla landsliðið fór alla leið í undanúrslit í janúar og við það lengist ferðin. Það þýðir aukakostnaður upp á 5-7 milljónir. Árangur kostar, þeir styrkir sem við fáum eru aldrei afreks miðaðir heldur bara föst tala.“ Stjórn HSÍ vonast þó til að lausn finnist á næstu misserum svo hægt verði að tryggja áframhaldandi uppbyggingu og árangur íslensks handbolta. Íslenska karla landsliðið er í dag statt í Egyptalandi þar sem liðið leikur tvo vináttulandsleiki gegn Egyptum. Fyrri leikurinn fer fram í dag klukkan 13:00 en sá seinni á föstudaginn. Stór hópur frá HSÍ er á svæðinu og hefur Handkastið fengið sendingar frá lesendum þar sem velt er því fyrir sér hvort það sé eðlilegt hversu margir starfsmenn á vegum HSÍ eru staddir í Egyptalandi þegar fjárhagsstaðan er ekki betri en raun ber vitni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.