Er í viðræðum við nokkur félög
Egill Bjarni Friðjónsson

Serbneski markmaðurinn Jovan Kukobat í HK kom aðeins við sögu undir lok tímabilsins í Olís deild karla eftir að hafa verið þónokkuð frá vegna meiðsla.

Jovan kom upprunalega til Íslands sumarið 2012 þegar hann samdi við Akureyri Handboltafélag en þá var hann 25 ára gamall. Hann hefur verið hér á landi nánast sleitulaust síðan.

Með Akureyri Handboltafélagi lék hann í nokkur ár áður en hann samdi við KA eftir að Akureyri handboltafélag lagði upp laupana. Eftir nokkur ár í KA samdi hann svo við Þór Akureyri. Eftir stutta dvöl hjá Þór Akureyri hélt hann suður á bóginn og samdi við Víking. Hjá Víking var hann bara í 1 ár en samdi svo við Aftureldingu og var þar í nokkur ár. Sumarið 2024 samdi hann svo við HK þar sem hann hefur verið síðan.

Jovan hefur alltaf verið duglegur að sinna markmannsþjálfun samhliða spilamennsku hjá þeim félögum sem hann hefur verið í.

Við heyrðum aðeins í Jovan og spurðum hvernig framhaldið hjá honum væri. Hvort hann sæi fyrir sér áframhaldi spilamennsku eða færa sig ennþá meira út í markmannsþjálfun.

"Staðan á mér þessa dagana að ég hef frjálsar hendur að velja mér umhverfi til að vera í. En ég er ennþá að æfa með HK þar sem ég er með gildan samning við þá fram í ágúst. Mér líður vel líkamlega, ég er að jafna mig eftir meiðslin sem ég varð fyrir og nota tímann til að verða enn betri. Ég er í viðræðum við nokkur félög en líka HK. Ég er að reyna að átta mig á næstu skrefum og hvort félögin vilji mig frekar sem leikmann eða sem markmannsþjálfara til að vinna með markmönnum innan félagsins. Ég samþykkti líka símtal frá HSÍ um að fara til Kína á HM með U-20 ára landslið kvenna þar sem ég mun aðstoða Halldór Stefán. En svo það sé sagt að þá er ég ennþá áhugasamur um að spila og standa mig en það fer vissulega eftir samningnum og tilboðunum" sagði serbneski markmaðurinn geðugi Jovan Kukobat.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top