Sigur Frakka í fyrsta leik Talants – Óvæntur sigur Grikkja
Sebastian Elias Uth / Ritzau Scanpix / AFP

Fyrri umferðin í umspilinu um laust sæti á Heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í janúar á næsta ári hófst í gær með fimm leikjum.

Frakkar og Norðmenn standa vel að vígi eftir úrslit gærkvöldsins en Noregur vann þrettán marka sigur á Tyrkjum á heimavelli, August Pedersen var markahæstur í norska liðinu með 10 mörk. Frakkar unnu ellefu marka sigur á Tékkum á útivelli. Um var að ræða fyrsta leik Frakka undir stjórn Talants Dujshebaev sem tók við liðinu eftir Evrópumótið.

Frakkar unnu 26-37 eftir að hafa verið 14-20 yfir í hálfleik. Það þarf því margt að fara úrskeiðis svo Norðmenn og Frakkar vinni sér ekki inn sæti á heimsmeistaramótinu en seinni leikir þjóðanna fara fram um helgina.

Óvæntustu úrslit gærkvöldsins litu dagsins ljós í Grikklandi þegar heimamenn unnu tveggja marka sigur á Hollendingum 29-27. Grikkir voru 14-12 yfir í hálfleik og skoruðu fyrstu tvö mörk seinni hálfleiks. En úr stöðunni 16-12 breyttist staðan í 20-25 Hollendingum í vil, 4-13 kafli. Grikkirnir létu það ekki hafa áhrif á sig og voru sterkari aðilinn undir lok leiks og unnu að lokum mikilvægan tveggja marka sigur.

Sviss hafði betur gegn Ítölum á heimavelli 32-29 eftir að hafa verið mark undir í hálfleik 16-17 og þá tapaði Austurríki á heimavelli gegn Pólverjum 25-26 í jöfnum og spennandi leik þar sem liðin skiptust á að vera með forystuna í seinni hálfleik.

Pólverjar standa því vel að vígi fyrir heimaleikinn um helgina en fimm aðrir leikir fara fram í kvöld þar sem hæst ber að nefna leik Serbíu og Ungverjalands. Þá verða Íslandsmeistarnir í Val, þeir Allan Norðberg og Bjarni í Selvindi verða í eldlínunni hjá Færeyjum þegar liðið leikur gegn Bosníu.

Úrslit gærkvöldsins:
Grikkland – Holland 29-27
Austurríki – Pólland 25-26
Sviss – Ítalía 32-29
Tékkland – Frakkland 26-37
Noregur – Tyrkland 43-30

Leikir kvöldsins:
Slóvakía – Norður-Makedónía
Bosnía – Færeyjar
Serbía – Ungverjaland
Spánn – Ísrael
Svartfjallaland – Slóvenía

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top