Sænski landsliðslínumaðurinn Felix Möller segir að hann hafi átt möguleika á að ganga til liðs við stórlið í bæði Ungverjalandi og Þýskalandi áður en hann ákvað að vera áfram hjá danska stórliðinu, Álaborg. Þetta kemur fram í viðtali á heimasíðu félagsins. Möller, sem er 23 ára línumaður segir að honum hafi staðið til boða að fara til Pick Szeged áður en hann samdi við Álaborg árið 2024. Síðar sýndi þýska stórveldið THW Kiel honum einnig áhuga. Svíinn segir þó að samtöl við stjórnendur Álaborgar og þáverandi þjálfara félagsins hafi sannfært hann um að framtíð félagsins væri spennandi. Þá hafi fjölskylduaðstæður einnig skipt máli, þar sem styttra sé heim til Svíþjóðar frá Danmörku en frá Ungverjalandi. ,,Kiel hefur alltaf verið draumafélagið mitt, þannig að ég var bæði stoltur af áhuganum þeirra en á sama tíma var þetta erfið ákvörðun,“ sagði Möller í viðtalinu. Hann bætti þó við að þátttaka Álaborgar í Meistaradeild Evrópu. Álaborg er á leið í Final 4 helgina í Meistaradeildinni eftir mánuð þar sem liðið mætir Barcelona í undanúrslitum. Möller er samningsbundinn félaginu til ársins 2028 hann segist stefna hátt á næstu árum. ,,Ég vil verða besti línumaður heims og vinna titla bæði með félagsliði og landsliði,“ sagði Möller.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.