Víkingar gerðu upp tímabilið á lokahófi

Lokahóf meistaraflokka Víkings fór fram miðvikudagskvöldið 13. maí, í veislusalnum í Virkinu þar sem leikmenn og þjálfarar komu saman og gerðu upp tímabilið. Boðið var upp á veitingar frá Kjötkompaníinu.

Fráfarandi þjálfari meistaraflokks kvenna, Sebastian Alexanderson, fékk sérstakar þakkir fyrir unnin störf í þágu félagsins. Einnig var Jóhanni Reyni Gunnlaugssyni þakkað fyrir sitt framlag til félagsins og fékk hann málverk að gjöf.

Að venju voru veitt verðlaun til leikmanna fyrir framlag sitt á tímabilinu. Verðlaun voru veitt fyrir besta leikmanninn, efnilegasta leikmanninn og besta liðsfélagann.

Verðlaunahafar tímabilsins hjá Víking voru:

Mfl kvk

Besti leikmaður: Valgerður Elín Snorradóttir
Efnilegasti leikmaður: Emilía Ína Burknadóttir
Besti liðsfélaginn: Hafdís Shizuka Iura

Mfl kk

Besti leikmaður: Ísak Óli Eggertsson
Efnilegasti leikmaður: Daði Bergmann Gunnarsson
Besti liðsfélaginn: Jóhann Reynir Gunnlaugsson

"Handknattleiksdeild Víkings óskar öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju og þakkar leikmönnum, þjálfurum, sjálfboðaliðum og samstarfsaðilum kærlega fyrir frábært tímabil. Mikil tilhlökkun er fyrir komandi tímabili þar sem bæði karla- og kvennalið félagsins munu leika í efstu deild" segir í tilkynningunni frá Víking.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top