Mensah lék sinn síðasta landsleik
BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP

Mikil stemning ríkti í Royal Arena í Kaupmannahöfn í gærkvöldi þegar danska handboltalandsliðið heiðraði einn af sínum dáðustu leikmönnum. Mads Mensah Larsen lék sinn síðasta landsleik og kvaddi með stæl eftir glæsilegan feril.

Danir tóku á móti Þjóðverjum í æfingaleik í Royal Arena og unnu sannfærandi átta marka sigur 36-28. Mathias Gidsel var markahæstur í danska landsliðinu með 10 mörk og Emil Jakobsen kom næstur með átta mörk. Þjóðirnar mætast aftur á morgun, þá í Lanxess Arena í Köln.

Mensah hefur verið lykilmaður danska landsliðsins undanfarin ár. Á ferlinum spilaði hann alls 225 landsleiki og skoraði 341 mark, auk þess að vinna til ellefu verðlauna á stórmótum, þar á meðal heimsmeistaratitla og Ólympíugull og nú síðast Evrópumótið í janúar.

Eftir Evrópumótið í janúar ákvað Mensah að leggja landsliðsskóna á hilluna. Með því lýkur kafla hjá einum mikilvægasta leikmanni Dana á síðustu árum, leikmanni sem hefur verið hornsteinn í einu sigursælasta tímabili í sögu dansks handbolta. 

Mensah leikur í dag með danska félaginu Skjern en hann sneri þangað aftur árið 2025 eftir farsælan feril erlendis. Hann lék sex tímabil með Rhein Neckar Löwen og síðan fimm tímabil með Flensburg áður en hann sneri aftur heim til Danmerkur.

Thomas Traasdahl / Ritzau Scanpix / AFP
People gather at the City Hall Square to celebrate Denmark's Mads Mensah Larsen and Denmark's men's handball national team in Copenhagen, Denmark on February 2, 2026, after the team won gold at the Men's EHF Euro 2026 final handball match. (Photo by Thomas Traasdahl / Ritzau Scanpix / AFP) / Denmark OUT / DENMARK OUT

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top