
Einn efnilegasti leikmaður Svíþjóðar, Arvid Perez Heselius fæddur árið 2008 hefur nú tekið ákvörðun að hann ætli að leika fyrir spænska landsliðið. Það er sænski miðillinn, Aftonbladet sem greinir frá ákvörðun leikmannsins. Arvid Perez Heselius sem er örvhentur og talinn einn efnilegasti leikmaður Svíþjóðar segir að ákvörðunin hafi verið tekin með hjartanu. Hann vakti athygli í Allsvenskan með liði sínu HK Aranås í vetur. Leikmaðurinn fæddist á Spáni og á sænskan föður, handboltaþjálfarinn Diego Perez Marne sem starfar hjá Aranås. Arvid sem verður 18 ára í september lék með U17 ára landsliði Svía í haust og lék einnig með liðinu í landsliðsverkefni í mars. Nú hefur hann hinsvegar tekið ákvörðun að leika með spænska landsliðinu í framtíðinni. ,,Ég kann betur við spænskan handbolta og er alinn upp við þannig handbolta. Bæði vegna þess hvernig pabbi hefur þjálfað mig og Manolo Cadenas sem ég hef æft hjá á sumrin. Mér líkar vel við sænskan handbolta en eftir að hafa talaði við Spánverjana og þeirra áætlun, þá tel ég það vera rétta ákvörðun að velja Spán." Var þetta erfið ákvörðun? ,,Já, það var það. Ég er mjög þakklátur fyrir minningarnar sem ég tókst að skapa með Svíþjóð og er þakklátur öllum þjálfurum og leikmönnum. En mér finnst eins og ég muni þroskast og þróast meira í spænska umhverfinu."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.