

Franski landsliðsmaðurinn Dylan Nahi hefur verið orðaður við mögulega endurkomu til Paris Saint-Germain sumarið 2027, samkvæmt færslu frá Instagram-síðunni Rthandball. Þar er vísað í heimildir sem segja að vinstri hornamaðurinn gæti snúið aftur til uppeldisfélags síns í París. Nahi, sem leikur í stöðu vinstri hornamanns, er einn af lykilmönnum franska landsliðsins og hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn besti leikmaður heims í sinni stöðu en þá er hann einnig öflugur varnarmaður. Hinn 26 ára gamli leikmaður hóf atvinnumannaferil sinn hjá PSG árið 2016 og lék með félaginu til ársins 2021. Eftir það gekk hann til liðs við pólska stórliðið Industria Kielce, þar sem hann hefur verið fastamaður síðan. Nahi varð Evrópumeistari með Frökkum 2024 og þá hefur hann unnið til silfur og bronsverðlauna á HM.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.