Svíi orðaður við Melsungen
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP

Sænski handboltaþjálfarinn Patrik Fahlgren er nú orðaður við þýska félagið MT Melsungen, samkvæmt þýskum miðlum.

Fahlgren þekkir vel til hjá Melsungen en hann lék með félaginu á árunum 2011 til 2017. Hann er sagður vera á lista félagsins yfir mögulega arftaka í þjálfarastólnum. Hann starfar í dag sem þjálfari hjá sænska liðinu Hammarby og er einnig aðstoðarlandsliðsþjálfari Svíþjóðar.

Áður hafði Melsungen verið orðað við Jaron Siewert, fyrrum þjálfara Füchse Berlin, en félagið hefur neitað því að hafa gert honum tilboð.

Í staðinn hefur athyglin nú beinst að Fahlgren. Íþróttastjóri Melsungen, Jesper Larsson, staðfesti að nafn hans væri á lista yfir mögulega kandídata og vísaði til tengsla hans við félagið og sænskan handbolta. Patrik Fahlgren lék rúmlega 50 landsleiki fyrir Svíþjóð á sínum leikmannaferli.

Óvissa ríkir þó enn um þjálfaramál Melsungen, þar sem núverandi þjálfari, Roberto Parrondo, er með samning til ársins 2027. Hann hefur hins vegar undanfarið verið orðaður við franska stórliðið Paris Saint-Germain Handball.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top