
Vinstri hornamaðurinn í liði ÍBV, Nökkvi Snær Óðinsson er hættur í handbolta aðeins 27 ára að aldri, en þetta tilkynnti hann á Instagram síðu sinni fyrir helgi. Nökkvi lék 20 leiki með ÍBV í Olís-deildinni í vetur og skoraði 16 mörk en hann lék bæði í vinstra og hægra horni Eyjamanna í vetur. Nökkvi hefur leikið með ÍBV allan sinn feril en hann er annar leikmaður ÍBV sem segir skilið við handboltann því Ísak Rafnsson tilkynnti einnig á dögunum að hann ætlaði að segja þetta gott. ,,Takk fyrir mig ÍBV! Ég hef ákveðið að segja þetta gott og geng stoltur frá borði. Fullt af minningum, frábærum tíma og ennþá betri félagsskap. Upp og niður og allt það, en fyrst og fremst heiður. Ekki það að maður verður fyrsti maður í klefann á næsta tímabili og fæ kannski að mæta á eina og eina æfingu svo maður bæti ekki á sig. Takk - Áfram Bandalagið," skrifaði Nökkvi við Intagram færslu sína

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.