Norðurlöndin: Kristianstad með sigur í fyrsta leik í úrslitunum
Raggi Óla

Tvö Íslendingalið voru í eldlínunni í kvöld í Svíþjóð og Danmörku en í Svíþjóð fór fram fyrsti úrslitaleikurinn karla megin þegar deildarmeistarar Kristianstad tók á móti Malmö á meðan undanúrslitin hófust í Danmörku.

Það var nóg af mörkum skoruðum í Kristianstad en heimamenn voru sterkari og unnu góðan sigur, 39-34. Einar Bragi Aðalsteinsson átti frábæran leik fyrir heimamenn en hann skoraði ellefu mörk úr fjórtán skotum, gaf tvær stoðsendingar og fékk eina brottvísun að auki. Einar Bragi var besti maður Kristianstad ef marka má einkunnagjöf sænsku deildarinnar. Besti maður vallarins var þó leikmaður Malmö, Nikola Roganovic sem skoraði þrettán mörk úr nítján skotum. Næsti leikur liðanna fer fram í Malmö, laugardaginn næstkomandi en vinna þarf þrjá leiki.

Í Danmörku tóku Skanderborg á móti GOG í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum. Kristján Örn Kristjánsson, Donni átti erfitt uppdráttar í kvöld en hann klikkaði á öllum fimm skotum sínum en gaf þó þrjár stoðsendingar. Það kom þó ekki að sök því Skanderborg vann í frábærum leik eftir framlengingu, 38-35.

Úrslit kvöldsins:

Kristianstad 39-34 Malmö

Skanderborg 38-35 GOG

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top