Þýska Bundesligan fer aftur af stað eftir landsleikjapásu annað kvöld þegar tveir leikir fara fram í 32.umferð deildarinnar. Þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Ómar Ingi Magnússon var í liði 31.umferðarinnar eftir frammistöðu sína í þrettán marka sigri liðsins gegn Hamburg 41-28 þar sem Ómar Ingi skoraði ellefu mörk úr ellefu skotum. Magnus Saugstrup liðsfélagi hans hjá Magdeburg var einnig í liði umferðarinnar en hann skoraði fimm mörk úr fimm skotum í leiknum. Lið 31. umferðarinnar er hægt að sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.