Danski markvörðurinn Jannick Green hefur staðfest að hann sé að skoða möguleikann á að ganga til liðs við danska félagið HÖJ Elite, sem féll nýverið úr efstu deild niður í aðra deild danska handboltans. Green, sem leikur nú með Paris Saint-Germain, ræddi málið í viðtali við Handball-World og viðurkenndi að viðræður væru í gangi. Félagaskiptin myndu vekja mikla athygli, enda væri um að ræða stórt stökk frá einu sterkasta félagsliði Evrópu yfir í lið í næstefstu deild. HÖJ Elite hefur þó sett af stað metnaðarfullt verkefni og stefnir á að komast hratt aftur upp í efstu deild. Félagið tilbúið að fjárfesta verulega til að styrkja hópinn fyrir komandi tímabil. Green er 37 ára gamall og hefur verið einn reyndasti markvörður Evrópu undanfarin ár. Hann lék áður með SC Magdeburg í Þýskalandi áður en hann gekk til liðs við PSG árið 2022. Markvörðurinn gaf þó ekki skýrt svar um hvort af félagaskiptunum yrði, en sagði að framtíðaráformin væru enn í skoðun. RK Partizan í Serbíu hafa verið sterklega orðaðir við Jannick Green eftir að vandræði HÖJ Elite urðu raunveruleg. Er félagið sagt hafa mikinn áhuga á að fá danska markvörðinn til sín en liðið stefnir á þátttöku í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.