Álaborg sló met með stórsigri í gær
Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP

Undanúrslitin um danska meistaratitilinn hófst í gær þegar Skanderborg hafði betur gegn GOG 38-35 eftir framlengdan leik og í Álaborg unnu heimamenn 19 marka sigur gegn Mors-Thy 40-21.

Með þeim sigri sló Álaborg met í Danmörku því aldrei áður í sögu úrslitakeppninnar í Danmörku hefur lið unnið svo stóran sigur í undanúrslitum keppninnar.

Álaborg stendur vel að vígi fyrir annan leik liðanna sem fram fer á laugardaginn en vinna þarf tvo leiki til að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu.

Felix Möller var markahæstur í liði Álaborgar með sex mörk en tólf leikmenn Álaborgar skoruðu í leiknum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top