Magdeburg geta orðið meistarar í kvöld
RONNY HARTMANN / AFP

Íslendingalið Magdeburg getur tryggt sér Þýskalandsmeistaratitilinn í kvöld sigri liðið Flensburg á heimavelli í toppslag deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 18:00.

Magdeburg er á toppi deildarinnar með 36 stig, sjö stigum meira en Flensburg sem er í 2.sæti deildarinnar með 29 stig. Eftir leikinn í kvöld eru einungis eiga liðin einungis þrjá leiki eftir af deildarkeppninni.

Vinni Magdeburg í kvöld er ekkert lið sem getur náð þeim að stigum í síðustu þremur leikjunum en Magdeburg vann síðast deildina tímabilið 2023/2024 og 2021/2022. Í millitíðinni unnu Kiel deildina og Füchse Berlin eru ríkjandi meistarar eftir sigur á síðustu leiktíð.

Með Magdeburg leika Ómar Ingi Magnússon, Elvar Örn Jónsson og Gísli Þorgeir Kristjánsson en allir fengu þeir frí í landsleikjunum sem leiknir voru í síðustu viku þegar Ísland lék tvo vináttulandsleiki gegn Egyptum í Kaíró.

Magdeburg verða einnig í eldlínunni á Final 4 helginni í Meistaradeildinni í júní en þar mætir liðið Füchse Berlín í undanúrslitum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top