Magdeburg Þýskalandsmeistarar eftir jafntefli
HENDRIK SCHMIDT / dpa Picture-Alliance via AFP)

Íslendingalið Magdeburg tryggði sér í kvöld Þýskalandsmeistaratitilinn eftir jafntefli við Flensburg á heimavelli, 30-30. Eftir jafnteflið er það ljóst að Magdeburg er sjö stigum á undan Flensburg en aðeins sex stig í pottinum og því getur ekkert lið náð Magdeburg að stigum.

Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sex mörk úr sex skotum og gaf tvær stoðsendingar, Elvar Örn Jónsson skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum og Ómar Ingi Magnússon skoraði þrjú mörk úr sex skotum og gaf eina stoðsendingu. Handkastið sendir hamingjuóskir til strákanna okkar í Magdeburg.

Tveir aðrir leikir fóru fram í kvöld en Füchse Berlin og Hannover-Burgdorf skildu einnig jöfn 30-30 og Melsungun vann Leipzig á útivelli, 27-33 þar sem Blær Hinriksson skoraði eitt mark úr tveimur skotum en hjá gestunum átti Arnar Freyr Arnarsson frábæran leik og skoraði sjö mörk úr sjö skotum og Reynir Þór Stefánsson skoraði þrjú mörk úr þremur skotum.

Úrslit kvöldsins:

Magdeburg 30-30 Flensburg

Füchse Berlin 30-30 Hannover-Burgdorf

Leipzig 27-33 Melsungen

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top