

Einn leikur átti sér stað í dag er 32.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar var leikin. Úrslit dagsins: Eisenach-Lemgo 34-38
Leikurinn fór fram í Werner-Assmann Halle heimavelli Eisenach er þeir tóku á móti Lemgo. Leikurinn var jafn framan af þar sem eitt mark var á milli liðanna í hálfleik. Í seinni hálfleik stungu Lemgo af en Eisenach voru ekki langt á eftir, lokatölur 34-38 Lemgo í vil. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Niels Versteijnen með 8 mörk og 6 stoðsendingar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.