Norðurlöndin: Kolstad komið yfir í úrslitaeinvíginu
Kristinn Steinn Traustason

Þrír leikir fóru fram á Norðurlöndunum í dag en í Noregi eru Kolstad komnir í 1-0 gegn Drammen í einvígi liðanna um Noregsmeistaratitilinn á meðan Skanderborg er komið í úrslit í Danmörku og Malmö jafnaði gegn Kristianstad í úrslitunum í Svíþjóð.

Við byrjum í Noregi en Kolstad vann góðan heimasigur á Drammen, 34-30. Íslendingarnir voru sem fyrr í stóru hlutverki en Benedikt Gunnar Óskarsson átti frábæran leik fyrir liðið, hann skoraði níu mörk úr ellefu skotum og gaf sjö stoðsendingar. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur mörk úr sex skotum og gaf eina stoðsendingu og Sigurjón Guðmundsson átti flottan leik í marki liðsins og varði 34% skota sinna eða tólf skot af þeim þrjátíu og fimm sem hann fékk á sig. Næsti leikur liðanna fer fram á miðvikudagskvöldið næstkomandi.

Í Danmörku eru Skanderborg komnir í úrslit í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir annan sigur liðsins gegn GOG, lokatölur urðu 26-33 fyrir gestina. Kristján Örn Kristjánsson, Donni skoraði fjögur mörk úr átta skotum og gaf þrjár stoðsendingar en liðið mætir deildarmeisturum Álaborg í úrslitum.

Að lokum tapaði Kristianstad leik númer tvö í einvígi sínu gegn Malmö um sænska meistaratitilinn, lokatölur í Malmö urðu 42-35 fyrir heimamenn. Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði fjögur mörk úr átta skotum og fékk tvær brottvísanir að auki. Næsti leikur liðanna fer fram í Kristianstad á þriðjudagskvöldið næstkomandi.

Úrslit dagsins:

Kolstad 34-30 Drammen

GOG 26-33 Skanderborg

Malmö 42-35 Kristianstad

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top