Segir Lasse Andersson ætla taka slaginn í dönsku B-deildinni
Andreas Gora / AFP

Við greindum frá því í morgun að Jannick Green ætli að taka slaginn með HØJ þrátt fyrir fall liðsins niður í dönsku B-deildina.

Jannick Green hafði samið við félagið áður en liðið féll og voru uppi vangaveltur um það hvort að þær stórstjörnur sem höfðu samið við félagið myndu leika með liðinu í dönsku B-deildinni. Fall liðsins virðist ekki trufla dönsku landsliðsmennina því samkvæmt TV 2 Sport hefur landsliðsmaðurinn, Lasse Andersson ákveðið að leika með liðinu á næstu leiktíð.

Lasse Andersson gengur í raðir HØJ frá Fuchse Berlín þar sem hann hefur verið stórkostlegur ásamt landa sínum, Mathias Gidsel að undanförnu.

Samkvæmt TV 2 Sport höfðu bæði Álaborg og GOG áhuga á að ná í 32 ára gamlan Lasse Andersson frá HØJ eftir fall þeirra, rétt eins og þýska félagið Füchse Berlin sem var einnig tilbúið að bjóða honum eins árs samning í viðbót hjá félaginu.

En TV 2 Sport hefur frétt að Lasse Andersson hafi tekið ákvörðun um að snúa heim til Danmerkur og segja já við HØJ verkefnið, sem hefur mikinn metnað og tíminn í 1. deildinni verður stutt stopp á leiðinni á toppinn í danska karlahandboltanum.

Hvorki Lasse Andersson né HØJ hafa viljað tjá sig um upplýsingar TV 2 Sport.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top