
Sävehof eru sænskir meistarar í handbolta kvenna eftir sigur í framlengingu gegn Skara í þriðja leik liðanna en leikurinn fór fram í dag á heimavelli Sävehof, Partille Arena. Elín Klara Þorkelsdóttir var sem fyrr í stóru hlutverki í liðinu og kórónaði frábært tímabil með sigri í dag. Hún skoraði átta mörk úr þrettán skotum, þar af komu fimm mörk úr vítum og hún fékk einnig eina brottvísun. Hjá gestunum skoraði Lena Margrét Valdimarsdóttir tvö mörk úr fimm skotum og gaf eina stoðsendingu fyrir liðið en þetta var lokaleikur hennar fyrir liðið því hún er á leiðinni í Fram. Sävehof byrjaði gríðarlega vel í dag og leiddi með sex mörkum í hálfleik en Skara kom til baka og náði að komast yfir rétt fyrir lok leiksins en heimakonum tókst að jafna leikinn og komast í framlengingu. Þar reyndust Sävehof sterkari að lokum og vann með einu marki, 29-28. Þær enda því tímabilið á því að fara taplausar í gegnum úrslitakeppnina. Elín Klara endar því fyrsta tímabil sitt í atvinnumensku með því að vera deildar- og landsmeistari í Svíþjóð ásamt því að vera valin besti miðjumaður deildarinnar og MVP (mikilvægasti leikmaður) deildarinnar. Við í Handkastinu sendum hamingjuóskir til Elínar Klöru og liðsfélaga hennar í Sävehof.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.