Skrifar Gísli Þorgeir söguna?
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)

Íslenski landsliðsmaðurinn Gísli Þorgeir Kristjánsson hefur nú skrifað nafn sitt í sögubækur Meistaradeildar Evrópu í handbolta eftir að hafa verið valinn verðmætasti leikmaður Final 4 keppninnar í annað sinn.

Gísli er aðeins annar leikmaðurinn í sögu Final 4 sem hlýtur þessa viðurkenningu tvisvar sinnum. Sá eini sem hafði áður afrekað það er Aron Pálmarsson, sem var valinn MVP bæði árið 2014 með THW Kiel og árið 2016 með Veszprém. Gísli hlaut verðlaunin fyrst árið 2023 þegar SC Magdeburg varð Evrópumeistari og endurtók leikinn árið 2025 þegar þýska liðið vann titilinn á ný.

Verðlaunin fyrir verðmætasta leikmann Final4 hafa verið veitt frá árinu 2014 og hafa farið til leikmanna sjö mismunandi félaga. FC Barcelona er það félag sem hefur oftast átt MVP keppninnar, en þrír leikmenn félagsins hafa hlotið heiðurinn: Nikola Karabatic árið 2015, Gonzalo Pérez de Vargas árið 2021 og Melvyn Richardson árið 2024.

Áhugavert er að flestir MVP-leikmennirnir hafa komið úr sigurliði mótsins. Undantekningarnar eru Aron Pálmarsson árið 2014 og 2016, auk Artsem Karalek frá Kielce árið 2022, sem allir voru valdir bestir þrátt fyrir að tapa úrslitaleiknum.

Gísli Þorgeir Kristjánsson hefur því tækifærið á að endurskrifa söguna í næsta mánuði takist honum að vera fyrsti handboltamaðurinn í heiminum til að tryggja sér nafnbótina, MVP, í þriðja sinn á ferlinum.

Hér að neðan má sjá alla MVP verðlauna hafa í Meistaradeildinni frá upphafi.

  • 2014: Aron Pálmarsson (THW Kiel)
  • 2015: Nikola Karabatic (Barcelona)
  • 2016: Aron Pálmarsson (Veszprém)
  • 2017: Arpad Sterbik (Vardar Skopje)
  • 2018: Diego Simonet (Montpellier)
  • 2019: Igor Karacic (Vardar Skopje)
  • 2020: Hendrik Pekeler (THW Kiel)
  • 2021: Gonzalo Pérez de Vargas (Barcelona)
  • 2022: Artsem Karalek (Kielce)
  • 2023: Gísli Kristjánsson (SC Magdeburg)
  • 2024: Melvyn Richardson (Barcelona)
  • 2025: Gísli Kristjánsson (SC Magdeburg) ()

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top