Fer Gottfridsson í dönsku B-deildina?
Ruben De La Rosa / AFP

Samkvæmt Handbollsnyheter á samfélagsmiðlinum X er Jim Gottfridsson sagður líklegur til að ganga í raðir HØJ Elite sem féll nýverið í dönsku B-deildina eftir tap gegn Kolding í umspili um laust sæti í dönsku úrvalsdeildinni.

HØJ Elite var nýliði í dönsku úrvalsdeildinni og höfðu stór plön fyrir framtíðina en margir reynslu miklir leikmenn höfðu samið við liðið fyrir næstu leiktíð, meðal annars Lasse Andersson frá Fuchse Berlín og markmaðurinn Jannick Green frá PSG.

Jim Gottfridsson sem hætti hjá Pick Szeged á dögunum er sagður líklegur til að ganga í raðir danska félagsins í stað landa síns, Axel Månsson sem hafði samið við HØJ Elite en er nú sagður líklegur til að vera áfram hjá sænska félaginu Kristianstad á næstu leiktíð.

,,Nýjustu sögusagnir og upplýsingar frá traustum heimildum herma að nýja heimilisfang Jim Gottfridsson verði HØJ Elite. Eftir að Månsson er sagður vera áfram í Kristianstad hefur danska félagið stefnt að öðrum sænskum miðjumanni," segir í færslu Handbollsnyheter á X.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top