Annars Möstl bróðir til Þýskalands
FEDERICO GAMBARINI /AFP

Þýska handknattleiksfélagið Füchse Berlin hefur gengið frá tveggja ára samningi við austurríska leikmanninn Clemens Möstl. Með því fetar hann í fótspor eldri bróður síns, Constantin Möstl, sem stendur vaktina hjá TBV Lemgo-Lippe og austurríska landsliðinu.

Clemens, sem er tvítug vinstri skytta, kemur frá HC Linz AG í heimalandinu. Bróðir hans Constantin er sex árum eldri og hefur þegar fest sig í sessi í þýsku úrvalsdeildinni.

Til að byrja með verður Clemens lánaður til 1. VfL Potsdam sem leikur í þýsku B-deildinni. Það þýðir að bræðurnir munu ekki eigast við á næstunni nema lið þeirra mætist í bikarkeppninni á komandi tímabili.

Möstl er talinn einn efnilegasti handknattleiksmaður Austurríkis um þessar mundir. Á síðasta tímabili skoraði hann meðal annars 189 mörk fyrir Linz í austurrísku úrvalsdeildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top