Lokahófi HSÍ aflýst vegna drægrar miðasölu
Egill Bjarni Friðjónsson

Handknattleikssamband Íslands hefur ákveðið að aflýsa Lokahófi HSÍ sem átti að fara fram næstkomandi laugardag í Austurbæ. Ástæðan er dræm miðasala síðustu daga, þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu nú rétt í þessu.

Lokahóf HSÍ var auglýst í upphafi mars mánaðar og átti að endurvekja hinn vinsæla viðburð eftir nokkurra ára hlé. ,,Hafði sambandið vonast til að handboltahreyfingin myndi fjölmenna á viðburðinn," segir meðal annars í tilkynningunni frá HSÍ. Þar er tekið fram að þeir sem þegar hafa keypt miða munu fá þá endurgreidda.

,,Lokahófið átti að marka ákveðin tímamót þar sem viðburðurinn hefur ekki verið haldinn síðan fyrir heimsfaraldur Covid-19. Haldið verður lokahóf með sama sniði og undanfarin ár í næstu viku þar sem verðlaunahafar verða boðaðir til afhendingar."

Átti viðburðurinn að hefjast með dagskrá klukkan 20:00 næstkomandi laugardag þar sem auglýst var stútfull dagskrá með yfirferð yfir handboltaárið, tilnefningum og verðlaunaafhendingum. Aldurstakmark var 16 ár og þurftu gestir yngri en 18 ára að vera í fylgd með fullorðnum.

Verðið á lokahóf HSÍ var 13.990 krónur og hefur Handkastið heyrt gagnrýnisraddir yfir því háa miðaverði en listamenn á borð við Herra Hnetusmjör, Birgitta Haukdal og fleiri höfðu verið auglýstir. Veltu margir því fyrir sér hvort þarna væri HSÍ ekki að fara um of, í stórum listamönnum í stað þess að halda miðaverðinu í lægri kantinum. Ekki var um að ræða sitjandi viðburð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top