
Kolstad eru norskir meistarar fjórða árið í röð eftir tiltölulega öruggan útisigur á Drammen í kvöld, 24-39. Kolstad unnu einnig fyrri leik liðanna og því er titilinn þeirra á ný. Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði fjögur mörk úr fimm skotum og gaf sjö stoðsendingar en það verður fróðlegt að sjá hvort þetta hafi verið seinasti leikur hans með liðinu. Sigvaldi Björn Guðjónsson var ekki með liðinu í kvöld en hann hefur því leikið sinn seinasta leik því hann heldur til Þýskalands í sumar. Sigurjón Guðmundsson stóð vaktina í markinu mest allan tímann og varði tíu skot af þeim þrjátíu og tveimur sem hann fékk á sig eða 31% markvarsla en hann hefur verið orðaður við Val undanfarna daga. Hjá gestunum í Drammen stóð Ísak Steinsson í markinu hluta til en hann varði fimm skot af þeim tuttugu og þremur sem hann fékk á sig eða 22% markvarsla. Úrslit kvöldsins: Drammen 24-39 Kolstad

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.