
Aron Pálmarsson var í dag kynntur sem nýr þjálfari karlaliðs FH í Olís-deild karla. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi sem FH hélt í veislusal sínum í Kaplakrika. Sigursteinn Arndal, sem tók við þjálfun FH árið 2019 og leiddi FH til Íslandsmeistaratitils árið 2024, verður aðstoðarþjálfari FH liðsins og skipta þeir því um hlutverk en Sigursteinn var aðalþjálfari FH-liðsins á nýafstöðnu tímabili og gerði í september í fyrra nýjan þriggja ára samning við FH. Það kom mörgum á óvart þegar Aron Pálmarsson tók við sem aðstoðarþjálfari hjá FH í febrúar síðastliðnum eftir að hafa rætt það margoft opinberlega að hann væri ekki á leið í þjálfun. Aron fékk mjög stórt hlutverk sem aðstoðarþjálfari FH eftir áramót og stýrði sóknarleik FH meira og minna í öllum leikhléum FH-liðsins. FH tapaði gegn Val í oddaleik á síðustu sekúndu í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn og þá endaði liðið í 2.sæti Olís-deildarinnar. Á blaðamannafundinum var einnig kynntur nýr aðalstyrktaraðili handknattleiksdeildar FH sem er Spar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.