Eins og Handkastið greindi frá í byrjun maí er talið ansi líklegt að Lovísa Thompson leikmaður Íslands, deildar og bikarmeistara Vals sé á förum frá félaginu. Samkvæmt heimildum Handkastsins liggur leið Lovísu til Portúgals, nánar tiltekið til Benfica. Benfica er á toppi portúgölsku úrvalsdeildarinnar með þriggja stiga forskot á Madeira þegar tvær umferðir eru eftir. Benfica hefur orðið meistari í Portúgal síðustu fjögur tímabil og geta tryggt sér fimmta meistaratitilinn með sigri í næstu umferð. Fari svo að Lovísa semji við Benfica eins og allt bendir til, má fastlega gera ráð fyrir því að kærasti hennar, Þorgils Jón Svölu Baldursson yfirgefi karlalið Vals og flytji með henni til Portúgals. Þorgils Jón sneri til baka til Vals í janúar 2025 og hefur leikið með liðinu síðasta eitt og hálft árið og varð Íslands- og deildarmeistari með liðinu í ár. Hann kom heim í Val eftir eitt og hálft ár í Svíþjóð þar sem hann lék með Karlskrona. Nú gæti hinsvegar farið svo að Þorgils Jón yfirgefi uppeldisfélagið sitt aftur og haldi til Portúgals. Miklar breytingar verða á Íslandsmeistaraliði Vals frá síðasta tímabili en Agnar Smári Jónsson, Róbert Aron Hostert gáfu það út að þeir væru hættir í handbolta og þá gaf Magnús Óli Magnússon það út að hann ætlaði að taka sér frí í sumar og myndi síðan taka ákvörðun um framhaldið í ágúst. Þá er Dagur Árni Heimisson á leið aftur til KA eftir eitt ár hjá Val. Það verða ekkert minni breytingarnar hjá kvennaliði Vals sem eru þrefaldir meistarar en Lilja Ágústsdóttir og Thea Imani Sturludóttir hafa báðar yfirgefið félagið og leika erlendis á næsta tímabili. Lilja í Þýskalandi og Thea í Rúmeníu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.