
Kristianstad urðu í kvöld sænskir meistarar eftir sigur á Malmö í fjórða leik liðanna í úrslitum sænsku deildarinnar. Leikurinn fór fram í Malmö en einvígið endaði 3-1 fyrir Kristianstad sem þýðir að liðið vann allt í Svíþjóð í ár. Rétt eins og í fyrri leikjum liðanna var nóg af mörkum í kvöld en staðan í hálfleik var 17-20 fyrir gestina. Þeir héldu áfram að hafa frumkvæðið og leiddi allan seinni hálfleiknum, heimamenn reyndu allt hvað þeir gátu að jafna metin en allt kom fyrir ekki og Kristianstad unnu að lokum þriggja marka sigur, 38-41. Einar Bragi Aðalsteinsson átti flottan leik og skoraði tíu mörk úr fjórtán skotum, gaf tvær stoðsendingar og fékk eina brottvísun að auki. Hann var næstmarkahæstur í liðinu. Við í Handkastinu óskum Einari Braga og Kristianstad til hamingju með titilinn og þrennuna en liðið vann einnig deildarmeistaratitilinn og bikarmeistaratitilinn í ár. Úrslit kvöldsins: Malmö 38-41 Kristianstad

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.