Stórskyttan Thomas Arnoldsen gæti misst af úrslitaeinvíginu um danska meistaratitilinn eftir að hafa meiðst í undanúrslitaleik Álaborgar gegn Mors-Thy Håndbold á dögunum. Úrslitaeinvígið hefst á sunnudaginn þegar Álaborg fær Skanderborg í heimsókn. Thomas Arnoldsen þurfti að yfirgefa völlinn eftir um 25 mínútna leik í seinni undanúrslitaleik liðanna og kom ekki meira við sögu í 37-35 sigri Álaborgar sem tryggði félaginu sæti í úrslitaeinvíginu sjöunda árið í röð. Eftir leikinn staðfesti þjálfarinn Simon Dahl að leikmaðurinn hefði fengið högg á öxlina. „Hann fékk högg á öxlina og finnur til í henni. Við ætlum ekki að taka neina áhættu og þurfum að skoða þetta betur,“ sagði Dahl í samtali við TV 2 Sport. Þegar hann var spurður hvort Arnoldsen gæti leikið úrslitaeinvíginu sagðist hann vonast til þess, en að tíminn yrði að leiða það í ljós. Síðar kom þó í ljós að líklegt er að danski landsliðsmaðurinn missi af úrslitaeinvíginu gegn Skanderborg AGF. Þrátt fyrir að rannsóknir hafi sýnt að um högg á öxl sé að ræða en ekki alvarlegri meiðsli bendir flest til þess að Arnoldsen verði ekki leikfær fyrir úrslitaeinvígið gegn sínu gamla félagi. „Það er alltaf svekkjandi að meiðast. Ég lenti líka í því fyrr á tímabilinu þegar ég fótbrotnaði. Sem betur fer er þetta ekki jafn alvarlegt núna og ég mun gera allt sem ég get til að verða klár í úrslitaleikina, sem eru sérstaklega áhugaverðir fyrir mig í ár,“ sagði Arnoldsen.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.