Norðurlöndin: Álaborg leiða eftir sigur í fyrsta leik
Kristinn Steinn Traustason

Fyrsti leikur úrslitanna í Dönsku úrvalsdeildinni fóru fram í dag þegar Álaborg tók á móti Skanderborg. Fyrirfram var búist við sigri Álaborgar en liðið hefur aðeins tapað einum leik í Danmörku í ár.

Gestirnir byrjuðu þó vel í dag og leiddu óvænt í hálfleik með tveimur mörkum, 14-16. Heimamenn eru þó gríðarlega sterkir á heimavelli og komu til baka, náðu yfirhöndinni og leiddu með fjórum mörkum þegar tólf mínútur voru eftir. Gestirnir gáfust þó ekki upp og náðu að jafna áður en Álaborg komst aftur yfir með marki úr seinustu sókninni sinni.

Skanderborg fékk tækifæri til að jafna leikinn en eins og svo oft áður reyndist Niklas Landin hetja heimamanna. Skanderborg fékk vítakast þegar leiktíminn var að renna út og Landin varði vítið og tryggði liðinu sigurinn, 30-29 urðu lokatölurnar. Kristján Örn Kristjánsson, Donni átti flottan leik fyrir Skanderborg en hann skoraði sjö mörk úr átta skotum og gaf eina stoðsendingu.

Næsti leikur liðanna fer fram á heimavelli Skanderborg, fimmtudaginn 4.júní næstkomandi.

Úrslit dagsins:

Aalborg 30-29 Skanderborg

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top