MT Melsungen með þá Arnar Frey Arnarsson og Reyni Þór Stefánsson innanborðs vann í gær fyrsta stóra titilinn í sögu félagsins þegar liðið lagði THW Kiel 24:23 í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Hamborg. Fögnuðurinn var gríðarlegur hjá leikmönnum Melsungen eftir leikinn. Timo Kastening hljóp um völlinn í sæluvímu á meðan markvörðurinn Nebojsa Simic felldi gleðitár eftir að hafa átt stórleik í markinu. „Ég var hundrað prósent viss um að við myndum vinna. Við gátum einfaldlega ekki tapað þessum leik,“ sagði Simic eftir leikinn. Svartfellingurinn hefur beðið í níu ár eftir titli með félaginu. „Ég hef beðið í níu ár eftir þessum titli með Melsungen. Þetta er ótrúlega góð tilfinning,“ sagði hann. Þjálfarinn Roberto García Parrondo hrósaði sínum mönnum og sagði að „græðgi“ og „hjarta“ hefðu skilað liðinu alla leið að titlinum. Þrátt fyrir að ljóst hafi verið fyrir leik að Evrópudeildarmeistarinn yrði frá Þýskalandi í tíunda sinn á síðustu ellefu árum var mikið undir í úrslitaleiknum. Dainis Kristopans varð markahæstur hjá Melsungen með fjögur mörk í leik þar sem varnarleikur og markvarsla réðu miklu. Simic fór þar fyrir vörn Melsungen sem lagði grunninn að sigrinum. Melsungen hafði áður slegið út ríkjandi Evrópudeildarmeistara SG Flensburg-Handewitt með 37:30 sigri í undanúrslitum. Vonbrigðin voru mikil hjá THW Kiel. Auk þess að missa af fyrsta Evróputitlinum síðan félagið vann Meistaradeild Evrópu árið 2020 missti Kiel einnig af mikilvægum möguleika á sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Liðið er sem stendur í fimmta sæti Bundesligunnar og virðist MT Melsungen nú líklegt til að hljóta þriðja þýska sætið í Meistaradeild Evrópu. Lukas Zerbe var markahæstur hjá Kiel í úrslitaleiknum með fimm mörk, en það dugði ekki til. Kiel er því á leið í þriðja tímabilið í röð án þátttöku í Meistaradeild Evrópu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.