Tryggvi Garðar þakklátur fyrir tímann sinn í Austurríki
Kristinn Steinn Traustason

Eftir eitt tímabil í Austurríki skilja leiðir hjá Alpla Hard og Tryggva Garðari Jónssyni en hann yfirgefur félagið í sumar.

Handkastið greindi frá því á dögunum að Tryggvi Garðar væri á leið til Noregs og var hann kynntur hjá félaginu í gær.

Á samfélagsmiðla síðu Alpla Hard var Tryggva Garðari þakkað fyrir tímann sinn hjá austurríska félaginu sem féll úr leik í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar, frekar óvænt. Tumi Steinn Rúnarsson yfirgefur einnig liðið í sumar og þá hættir Hannes Jón Jónsson sem þjálfari liðsins.

,,Ungi Íslendingurinn festi sig á skömmum tíma í sessi sem traustur varnarsérfræðingur og mikilvægur hluti liðsins. Með miklum baráttuvilja og sterku hugarfari tók hinn 23 ára gamli leikmaður að sér mikilvægt hlutverk í liðinu og setti mark sitt á varnarleikinn," segir í tilkynningunni frá Alpla Hard þegar félagið kvaddi Tryggva.

Tryggvi Garðar segist sjálfur afar þakklátur fyrir tímann sinn hjá félaginu.

,,Frá fyrsta degi var mér tekið opnum örmum af félaginu, liðsfélögum mínum, þjálfurunum og stuðningsmönnunum. Á þessum tíma hef ég þroskast mikið, bæði sem leikmaður og sem manneskja. Ég vil þakka öllum innan félagsins fyrir stuðninginn og traustið sem mér var sýnt. Minningarnar og vináttuna sem ég eignaðist í Hard mun ég ávallt varðveita með hlýju. Nú hlakka ég til næsta kafla á ferlinum, að halda áfram að þróast sem leikmaður og takast á við nýjar áskoranir," sagði Tryggvi Garðar á samfélagsmiðla síðu félagsins.

Tryggvi Garðar gekk í raðir Alpla Hard síðasta sumar eftir að hafa orðið Íslands- og bikarmeistari með Fram.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top