Anton Gylfi og Jónas þeir bestu með flauturnar
Egill Bjarni Friðjónsson

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson er dómarapar tímabilsins en þetta var tilkynnt á uppskeruhátíð Olís- og Grill66 deila HSÍ sem haldið var í höfuðstöðvum Símans seinni partinn í dag.

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson er reynslumesta dómarapar landsins.

,,Þeir hafa á undanförnum árum skipað sér í hóp fremstu handknattleiksdómara landsins og með fagmennsku, öryggi og framúrskarandi störfum á tímabilinu unnið sér inn þessa verðskulduðu viðurkenningu," segir í færslu HSÍ á samfélagsmiðlum þegar valið var tilkynnt.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top