Álaborg urðu í kvöld danskir meistarar eftir sigur á Skanderborg öðru sinni, 31-35 á heimavelli Skanderborg. Þeir unnu fyrri leikinn með einu marki á heimavelli, 30-29 og kláruðu verkefnið í kvöld. Leikurinn var mjög jafn framan af og munaði aðeins einu marki í hálfleik, 18-19 fyrir gestina. Staðan var jöfn 29-29 þegar minna en níu mínútur voru eftir en þá sýndu Álaborg gæði sín og reynslu og sigu fram úr og kláruðu titilinn. Samt sem áður sögulegt og frábært tímabil hjá Skanderborg sem náði sínum besta árangri frá upphafi. Kristján Örn Kristjánsson, Donni var sem fyrr í liði heimamanna en hann átti erfitt uppdráttar með skotin í kvöld, nýtti aðeins tvö af átta skotum sínum en var duglegur að finna liðsfélaga sína og gaf sex stoðsendingar. Álaborg geta ennþá unnið fernuna en liðið tapaði aðeins einum deildarleik í vetur, vann deildarmeistaratitilinn, bikarinn og landsmeistaratitilinn og er einnig komið í final four í meistaradeildinni. Úrslit kvöldsins: Skanderborg 31-35 Aalborg

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.