Markmiðið og áhuginn er að vera áfram úti
Eyjólfur Garðarsson

Sigurjón Guðmundsson varð á dögunum norskur meistari með félagsliði sínu, Kolstad. Samningur hans við félagið rennur út en hann hefur leikið með liðinu síðustu tvö tímabil.

Sigurjón hefur verið orðaður við heimkomu og þá einkum við Íslands- og deildarmeistara Vals. Hann segir að eins og staðan er í dag ríki óvissa um framtíð sína.

Er markvörður Kolstad á leið í Val?

,,Það er smá óvissa framundan en markmiðið mitt og áhuginn er að vera áfram úti. Ég er að vinna í því að finna mér lið og skoða mína möguleika. Það er hinsvegar ekkert í hendi en það er einhver áhugi á manni allavega. Ég myndi gera ráð fyrir því að þetta kæmi allt í ljós á næstu 1-2 vikum vonandi," sagði Sigurjón í samtali við Handkastið en Sigurjón er sonur, Guðmundar Hrafnkelssonar sem lék yfir 400 landsleiki á sínum tíma með íslenska landsliðinu.

Sigurjón segist hafa heyrt í íslenskum liðum að undanförnu en hann er uppalinn hjá HK og hefur leikið með Kópavogsliðinu allan sinn feril hér á landi.

,,Ég er með möguleika hjá liðum heima líka en eins og ég segi þá vil ég sýna þessu smá þolinmæði og sjá hvað kemur."

16 October 2025, Berlin: Handball: Champions League, Füchse Berlin - Kolstad Handball, Group Phase, Group A, Matchday 5, Max-Schmeling-Halle. Mathias Gidsel (Füchse Berlin) throws the ball on goal against goalkeeper Sigurjon Gudmundsson (l, Kolstad Handball). Photo: Andreas Gora/dpa (Photo by Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top