Dujshebaev-bræðurnir aðskiljast eftir átta ár saman í Kielce
ANDRZEJ IWANCZUK / NurPhoto via AFP

Í sumar lýkur einstökum kafla á ferli Alex og Daniel Dujshebaev þegar þeir yfirgefa Industria Kielce og leika í fyrsta sinn á ferlinum með sitthvoru félaginu.

Eftir átta ár saman hjá pólska stórliðinu mun Alex Dujshebaev ganga til liðs við VfL Gummersbach, á meðan Daniel heldur einnig til þýsku Bundesligunnar, til nýkrýndra Evrópumeistara í Melsungen. Þar með lýkur löngu samstarfi bræðranna sem hafa nánast allan sinn feril leikið saman.

„Þetta verður öðruvísi, en svona er lífið. Nýjar áskoranir bíða og við vitum að við munum alltaf eiga hvor annan að" sagði Alex í viðtali við Kielce.

Að sögn bræðranna var ákvörðunin ekki tekin með það að markmiði að skilja leiðir.

„Hvor okkar fékk sitt tilboð. Það var ekkert félag sem vildi semja við okkur báða á sama tíma,“ útskýrði Daniel.

Báðir viðurkenna að það verði erfitt að venjast breytingunni. Frá unga aldri hafa þeir nær stöðugt verið saman á handboltavellinum, fyrst innan fjölskyldunnar, síðar hjá Kielce og með spænska landsliðinu.

„Ég naut þess að spila með Alex hjá sama félagi. Hefði ég haft tækifæri til þess hefði ég valið það aftur,“ sagði Daniel.

Náin tengsl bræðranna hafa gert árin í Kielce sérstök fyrir þá báða.

„Hann er bróðir minn. Við höfum spilað saman allt okkar líf, bæði með félagsliðum og landsliðinu, auðvitað skiljum við hvor annan á sérstakan hátt.“ sagði Alex.

Daniel sagði jafnframt að það hefði auðveldað breytingarnar að þeir væru báðir að fara á sama tíma.

„Það hefði verið skrýtið ef annar hefði verið eftir og hinn farið. Nú erum við báðir að hefja nýjan kafla, hvor í sinni borg og með sitt lið.“

Fyrir Alex snýst næsta skref fyrst og fremst um nýja áskorun í þýska handboltanum.

„Ég vil prófa mig áfram á ný. Ég vil upplifa hvernig Bundesliga er skipulögð og á hvaða stigi leikurinn er þar. Fólk segir alltaf að þetta sé annar handboltaheimur" sagði hinn 32 ára gamli leikstjórnandi

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top