Drengja landslið Íslands unnu alla leiki sína í Færeyjum
HSF

U16 og U15 ára landslið Íslands unnu alla fjóra vináttulandsleiki sína gegn Færeyjum, ytra um helgina. Handkastið greindi frá tveimur sigrum á laugardaginn.

Íslensku drengja landsliðin höfðu betur í Færeyjum

Bæði liðin unnu síðan einnig leiki sína á sunnudaginn. U16 ára liðið vann sannfærandi sigur 31-26 eftir að hafa leitt 17-13 í hálfleik. Þá vann U15 ára lið Íslands 31-24 sigur eftir að hafa leitt 15-12 í hálfleik þrátt fyrir að Færeyingar hafi byrjað leikinn betur.

Markaskorarar U16 ára landsliðs Íslands: Brynjar Narfi Arndal 9 mörk, Jakob Már Kjartansson 4 mörk, Einar Breki Olsen og Mikael Hrafn Loftsson 3 mörk hvor, Bjartur Fritz Bjarnason, Ingi Þór Sveinsson, Sveinn Ísak Hauksson og Guðmundur Levý Hreiðarsson 2 mörk hver og Alexander Jökull Hjaltason, Matthías Sigurðsson, Kári Einarsson og Fannar Ingi Gunnarsson 1 mark hver.

Stefán Örn Runólfsson varði 8 skot og Róbert Huldar Hákonarson varði 2 skot.

Markaskorarar U15 ára landsliðs Íslands: Stefán Hrafn Högnason 6 mörk, Gabríel Fannar Ólafsson 5 mörk, Ólafur Eldur Ólafsson 4 mörk, Fannar Breki Vilhjálmsson 3 mörk, Daníel Hilmar Hilmarsson 3 mörk, Kári Björn Guðjónsson 3 mörk, Brynjar Björnsson 2 mörk, Viðar Breki Davíðsson 2 mörk, Tómas Kristjánsson 1 mark, Gunnar Björn Ólafsson 1 mark.

Heiðar Berg Brynjarsson varði 11 skot og Andri Árnason varði 10 skot.

HSF
2010 landslið Íslands

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top