Tryggvi Garðar Jónsson hefur gengið til liðs við norska félagið Viking TIF í Bergen fyrir komandi tímabil en Viking unnu sér sæti í úrvalsdeildinni fyrir næsta tímabil. Í nýjasta þætti Handkastsins var Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Íslands- og deildarmeistara Vals gestur og var hann spurður út í þessi vistaskipti Tryggva en Tryggvi lék með Alpla Hard í Austurríki á síðustu leiktíð eftir að hafa orðið Íslands- og bikarmeistari með Fram tímabilið á undan. TRYGGVI GARÐAR GENGUR TIL LIÐS VIÐ VIKING ,,Ég þekki nú ekki mikið til þarna. Tryggvi Garðar langar greinilega að láta reyna á atvinnumennskuna meira. Ég get alveg viðurkennt það að ég hleraði hann aðeins og ég hafði áhuga að fá hann aftur í Val enda er hann uppalinn Valsari og við könnum oft stöðuna á Völsurunum sem eru úti. Mér finnst það skylda okkar að heyra í okkar mönnum erlendis og sjá hvort það sé möguleiki að þeir séu að koma heim. En ég ber virðingu fyrir hans ákvörðun og vonandi verður þetta gott skref fyrir hann. Hann stóð sig vel í Austurríki og ég horfði á nokkra leiki með þeim og mér fannst hann líta vel út," sagði Ágúst Þór Jóhannsson meðal annars.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.