Það kom mörgum á óvart þegar Grótta tilkynnti um helgina að hægri hornamaðurinn, Sæþór Atlason hafi framlengt samningi sínum við félagið til næstu tveggja ára og leikur því áfram með liðinu í Grill66-deildinni á næstu leiktíð. Sæþór hefur leikið með Gróttu undanfarin tvö ár en samningur hans við félagið rennur út í sumar. Í samtali við Handkastið í byrjun maí mánaðar sagði Sæþór að það væru 99% líkur á að hann myndi ganga í raðir uppeldisfélags síns, Selfoss. ,,Bæði Þór og KA höfðu áhuga á að fá mig en ég gat ekki tekið þeim tilboðum sem ég fékk að norðan. Grótta var tilbúið að gera ansi margt til að halda mér áfram. En ég og kærastan höfum ákveðið að flytja á Selfoss. Ég er búinn að vera að tala við stjórn Selfoss og það eru 99% líkur að ég fari þangað" sagði Sæþór Atlason við Handkastið fyrir mánuði síðan. Sæþór sem er fæddur árið 2004 og kom til Gróttu frá Selfossi fyrir tveimur árum síðan. Hann skoraði 101 mark fyrir félagið á síðastliðnu tímabili í Grill66-deildinni en liðið tapaði gegn Herði í undanúrslitum um laust sæti í Olís-deildinni. ,,Það er frábærar fréttir að Sæþór verði á Nesinu næstu tvö árin. Hann er virkilega öflugur hornamaður og gríðarlega hraður. Hann er öflugur liðsmaður sem ég hlakka mikið til að vinna með næstu árin," sagði nýráðinn þjálfari Gróttu, Andri Sigfússon þegar samningar voru í höfn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.