Ætla að taka þátt í stærstu handboltaleikjum ársins í Egilshöll um helgina
Ronny HARTMANN / AFP)

Það verður heldur betur handboltafjör í Next Level Gaming um helgina í Egilshöll þegar úrslitin í Meistaradeild Evrópu ráðast. Next Level Gaming ætlar að taka þátt í stærstu handboltaleikjum ársins með tveggja daga viðburð opnum öllum.

,,Komið og njótið leikjanna á stórskjálftar í góðri stemningu með öllum sem elska handbolta," segir í auglýsingu um viðburðinn á Facebook.

Fjórir Íslendingar verða í eldlínunni um helgina þegar Final 4 í Meistaradeildinni fer fram. Hjá Magdeburg leika Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon og þá verður Viktor Gísli Hallgrímsson í eldlínunni hjá Magdeburg.

,,Við hjá AB-Sportvörum og Next Level Gaming ætlum að vera með flotta stemningu í kringum FINAL4 næstu helgi á Next Level Gaming í Egilshöll. Allir leikir á stórskjá og skemmtileg dagskrá milli leikja. Hlökkum til að sjá handbolta þyrst fólk og vonum að þetta verði byrjunin á árlegri hefð hjá okkur," sagði Jóakim Snær Sigurðarson einn af eigendum AB Sportvara sem sjá um viðburðinn.

Nýjustu handboltaskórnir frá Kempa verða til sýnis og þá verður haldið Pub Quiz eftir undanúrslitaleikina á laugardeginum.

Hægt er að skoða viðburðinn á Facebook hér.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top